miðvikudagur, september 30, 2009
Fyrir nokkru, eða svona stuttu eftir síðustu alþingiskostningar spáði ég því að ríkisstjórninn myndi falla þann 9. október. Ég sá því smá von í dag að það myndi rætast miðað við ruglið í kommunum í dag. Þann 9. okt ætlar jókóónó nebblega að kveikja í friðarsúlunni sinni. Fyrir tveimur árum gerði hún það, og borginn féll, í fyrra gerði hún það og ísland næstum dó ...og núna lifnar það aftur við með falli sósíalísku hriðjuverkamannanna :)
ziggipeter | 21:11
|
...............
mánudagur, ágúst 24, 2009
Ég ákvað að taka mér 10 mín pásu og prufa skoða eitthvað annað en frumvörp um umhverfismál í augnablik. Það er mjög langt síðan ég hef skrifað blogg. Það er vegna þess að allt í einu fannst mér blogg svo hallærisleg. Ég var búinn að detta inn á svo marga mogga-bloggara að ég var kominn á þá skoðun að allir sem blogga hljóta að vera meira og minna geðveikir.
En hvað um það. Síðan ég bloggaði síðast hefur vorið liði og sumarið eiginlega líka. Samt er ég nú ennþá að bíða eftir að sumarið komi en það hefur farið alveg ótrúlega mikið framhjá mér. Ég tók mér tvær vikur í sumarfrí. Það voru vikurnar tvær fyrir verslunarmannahelgina. Það voru sömu vikurnar tvær sem enginn sól sást á norðurlandinu. Sólin þurfti samt að láta sjá sig á suðurlandinu ...af öllum stöðum á landinu. Það var þó ekki alslæmt því á þeim tíma var næstumhægt að hlusta á fjölmiðla og fréttir vegna þess að þegar það skín sól í Reykjavík þá er eins og það sé ekkert annað að frétta. Það var því kærkominn kvíld frá þessu endalausa krepputali og volæði sem er lítið öðruvísi en hefðbundin niðursveifla á landsbyggðinni þegar aflinn brestur. Í þetta skiptið er aflabresturinn í formi bankamanna, auðmanna og annarra hryðjuverkamanna úr borginni og hefur áhrif í Reykjavík núna en ekki vestfjörðum eða austurlandinu. Þetta kemur því harðast niður á 101 fólkinu sem vildi ekki nýta landið, heldur átti landsbyggðin að vera staður fyrir stressuð og úttauguð malbiksbörnin svo þau næðu aftur jarðsambandi í hreinni og ómengaðri náttúrunni.
Ég er ekkert búinn að gera neitt merkilegt í sumar. Við spússa mín fórum samt í slyddujeppaferð út í Fjörður með Bjarna og kittý og börnum okkar. Þangað hef ég aldrei komið áður og var bara nokkuð hrifinn. Ég týndi ber í massavís og vopu bæði föt og líkami vel marineruð í berjabláma við heimkomuna. Mér tókst reyndar að gera mig að algeru fífli þar líka. Hélt að ég væri nokkuð hólpin einhverstaðar út í óbyggðum og fjarri öllum mannabyggðum. Það var óhófleg bjartsýni. Marta mín fékk kókómjólk fyrir heimferðina. Eins og öll góð börn sem missa athyglina í eitt augnablik tók fernuna og sprautaði úr henni, yfir sig alla og hló þegar hún náði augnsambandi við mig. Ég öskraði og skoppaði út úr bílnum til þess að reyna bjarga einhverju enda fátt ógeðslegra en að fá mjólkurafurðir í bílinn. Ég veit t.d. hvernig pönnukökudeig fer að lykta eftir nokkra daga. Þegar ég var að verða búinn að skrúbba kemur bíll aftan að mér (vegurinn í Fjörðum er sko bara ööör-mjór og þarf annar að fara út af þegar maður mætir bíl. smá panic, ég að reyna skrúbba bílstólinn með ofurlitlum lamba þurkum. Spússan farinn að benda mér á að það er bíll að bíða fyrir aftan. Útlendiingabílstjórinn og allir hinir eru að horfa á mig ...og bíða. Pínu meira stress í gangi! Ég ákvað að hætta þrifunum og HLJÓP aftur fyrir bílinn ...og inn hinum megin og ætlaði nú að aka af stað. Spússan leit aftur fyrir sig og horfði á mig með undrunarsvip! Siggi, hvað ertu að gera þarna afturí ...erum við ekki að fara að leggja af stað? Ha! já, þú meinar.....!!! Ég ákvað að sitja í aftursætinu í smá stund í viðbót svo það liti út fyrir að ég væri að gera eitthvað merkilegt þarna í aftursætinu. Vippaði mér svo léttilega út og í framsætið og ók bilnum út af veginum svo þolinmóði útlendingurinn kæmist framhjá.
Annars fékk ég að vita hvaðan ég fékk þessa heppni í dag. Mamma er að búa til búr undir stiganum (...eða hún fékk smiði til þess og situr svo og leggur kapal og talar við smiðina, sem eru frændur mínir, á meðan þeir smíða búrið). Þegar smíðunum lauk ákvað mamma að ná í spartl og undirbúa málninguna. Mamma spurði pabba minn hvort þetta væri spartlið og sýndi honum fötuna með útlensku stöfunum. Hún fékk jákvæð viðbrögð og mamma mín spartlaði allt í hólf og gólf. Svo fór hún að pússa. Ekkert gekk að pússa og hún hundskammaði pabba fyrir að kaupa svona ferlegt spartl. Eftir að hendurnar gáfu sig náði mamma sér í rafmagns pússara. Eftir að missa þolinmæðina tók pabbi við og hamaðist á vélinni. Ekkert gekk. Mömmu fannst ekki eðlilegt að spartlið væri eins og steinn. Þegar pabbi bað um að sjá spartlið fékk mamma honum dós með flísalími í hendur! já, það borgar sig einmitt að kaupa í Múrbúðinni, þú skilur ekkert hvað stendur á helv.... dósinni!!!
ziggipeter | 22:40
|
...............
sunnudagur, mars 08, 2009
Mikið ótrúlega er ég latur við skriftirnar hérna á blogginu. Það er reyndar vegna þessa venjulega ...annaðhvort er ég í burtu og nýti þá tímann í að vinna eða er heima hjá mér og nýti þá tímann með konunum mínum tveimur eins og ég get (og þá ef ég þarf ekki að vinna). Við Marta prufuðum Photobooth í tölvunni. Henni finnst bara alls ekki neitt leiðinlegt að horfa á sjálfan sig eins og sjá má á meðfylgjandi mynd ...ég er reyndar dáldið nývaknaður á þessari mynd:)
Þessa helgina er ég fyrir austan og vinna eins og mófó. Það er líka búið að vera óvenju leiðinlegt veður þessa daganna og tildæmis áðan fann ég ekki afleggjarann inn á bílastæðið þar sem íbúðin er sem ég bý í og þurfti því að bakka í blindni og bakkaði nærri því á bíl sem kom á eftir mér. Þegar ég komst svo loksins inn á bílastæðið kom í ljós að það var næstum alveg ófært. Ég fór því bara í heitt bað með góðan slatta af lögum að lesa.
Það er reyndar að verða langt síðan ég hef sagt frá því hvað mér gengur stundum illa að vera eins og allir hinir. Hér er smá saga. Íbúðin mín hérna fyrir austan er í blokk. Á miðvikudaginn var líka óveður, eins og í dag. Þá fór ég í ræktina en þennan daginn var ég eitthvað óvenjulega vanstilltur. Eftir púlið fór ég svo á bílnum úr ræktinni, alla þessa 124 metra sem eru á milli rætarinnar og blokkarinnar. Í snjóbylnum sá ég ekki neitt ...eða svona varla neitt. Sá svo aðeins glitta í blokkina og veginn. Ég ók inn á bílastæðið, hoppaði úr í frostið og snjóbylinn, rennandi blautur af svita, og inn og flettist út á hurðinni. Læst!!!! Ég notaði lykilinn. Lykillinn var ekki að virka ...enda komst ég að því eftir stutta stund að ég stóð í blokk nr. 11 en ekki nr. 9 þar sem ég á heima!!!! Það er nebblega svo að þessar fjórar blokkir sem eru hérna á Reyðarfirði eru alveg nákvæmlega eins. Ég fór því út í bíl, skafaði af honum aftur enda hann kominn á kaf í fönn á augabragði, ók aðra 27 metra yfir á næsta bílastæði. Þar komst ég inn enda er anddyrið aldrei læst í blokkinni minni.
Eftir ræktina var auðvitað farið í sturtu. Ég hugsaði mikið um það í sturtunni að ég yrði nú að reyna hætta vera svona vitlaus og fara HUGSA UM ÞAÐ SEM ÉG GERI! Ég hugsaði þetta mjög ítarlega. Svo kláraði sturtuna í snarthasti, skrúfaði fyrir og byrjaði að þurka mér. Þetta gerðist samt svo hratt að ég náði ekki alveg að gera þetta í þessari röð. Ég nebblega reif handklæðið inn í sturtuna áður en ég var búinn að skrúfa fyrir vatnið. Ég þarf greinilega að hugsa þetta eitthvað betur ...þetta með að hugsa um það sem ég geri!
Síðan þá hefur allt gengið stóráfallalaust.
Ég hinsvegar er að verða brjálaður af söknuði hérna fyrir austan og get ekki beðið eftir að fá að knúsa dömurnar.
ziggipeter | 19:49
|
...............
mánudagur, febrúar 16, 2009
Kominn í Sódómu. Hef svo sem lítið að segja nema ég gæti óskað mér að vera heima hjá mér núna. Marta mín liggur heima með 39 gráðu hita en ég húki hér einn líka með hita, og ógleði. Ferlegt! Enginn til að vorkenna mér því spússan taldi sig nú sjá þetta á mér í gær og bannaði mér að fara í vinnuna. Ég, heljarmennið hið ónæma taldi auðvitað enga ástæðu til þess enda verð ég aldrei veikur ...að eiginsögn. Nú, þegar heljarmenni eiga bágt hringja þau auðvitað heim í spússuna til að láta vorkenna sér og segja "æji, aumingja þú" ...oft og ítrekað, endurtekið margsinnis. Spússan mín sagði bara "nú, jæja!" ...þetta var "nú, jæja" í svona "i told you so" meiningu. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir við að bera mig illa, hósta látlaust í síman og detta út annað slagið í móki mistókst mér herfilega.
Annars átti mamma mín afmæli í dag. Það var voða fín ammalisveisla. Ég reyndar var svo listalaus í dag og í morgun að þegar ég fór í hádegismatinn í álverinu gat ég ekki borðað neitt nema súpu. Var svo mjög svangur í allan dag og gat varla beðið eftir að komast í mat hjá mömmu. Maturinn hjá mömmu voru ávaxtaréttur í kókósbollurjóma, marengsterta, smákökur og annað eftir því. Mjög gott fyrir viðkvæma stráka sem voru að drepast úr hungri.
ziggipeter | 22:33
|
...............
miðvikudagur, febrúar 11, 2009
Ég hef verið áminntur um dapra frammistöðu í bloggheimum. Það stafar líklega af því að ég er alltof mikið að vinna og hef alltof lítinn tíma í að gera ekki neitt. Hér austur á landi er nóg að gera ...ekki alveg sama kreppuhljóðið í fólki hér og annarsstaðar svo þetta er alveg dandala fínt að mörgu leiti. Ég heyrði því þó fleygt í dag að einhver vitgrannasta kona landsins hafi lýst því yfir á alþingi í dag að hún skildi ekki afhverju húsvíkingar væru að væla yfir álveri, það sæju það allir að það hefði ekki skilað neinu fyrir austfirðinga! Ég á nú eftir að fá þetta staðfest en ef satt er þá OMG!!!! Hvursu heimskir og blindir sumir geta verið! Það er þó kannski lýsandi fyrir þá sem nú ráða í landinu að þau gerðu þessa mannvitsbrekku af umhverfisráðherra. Maður á víst ekki alltaf að hugsa að það geti ekki versnað. Síðast umhverfisráðherra var nú ekki alveg skarpasta tólið í skúrnum en lengi getur vont versnað.
Ég er annars farinn að mæta í ræktina hérna eins og áður hefur komið fram. Merkilegt nokk þegar ég mætti í dag var búið að taka góðan skurk í viðgerðum og bara þó nokkuð mörg tæki í lagi. Það er bara gott. Líkamsræktin er þó alveg að kosta sitt því ég þarf að versla mér kort á Eskifirði og á Akureyri. Bjarg varð fyrir valinu en er það bara einhvernveginn eina stöðinn finnst mér. Mig langaði reyndar að vera í Vaxtaræktinni, enda bý ég bara þar rétt við, en það virðist nú ekki vera alltof góð hugmynd að kaupa árskort þar miðað við ástandið þar ...með minni heppni færi sá staður á hausinn ef ég eyddi péningunum mínum þar:)
Núna annars langar mig ótrúlega mikið í gönguskíði. Langar reyndar líka á alvöruskíði ...jafnvel prufa snjóbretti í fyrsta skiptið á ævinni en það á ég alveg eftir að prufa. Held samt svona öryggisins vegna sé það betra að byrja bara á labbaraskíðum.
Á morgun er svo förinni heitið heim á norðurhjara veraldar í frostið og þaðan í hlýtt fangið á minni frábæru fjölskyldu. Merkilegt hvað mér finnst fimmtudagar orðið vera frábærir dagar:)
Skoðar einhver þetta blogg annars?
ziggipeter | 20:10
|
...............
miðvikudagur, janúar 07, 2009
Í dag er ég eitthvað ferlega slappur svo ég er kominn heim úr vinnunni frekar í fyrrikantinum. Ég ætlaði að fara leggja mig en þegar ég kom var ég auðvitað hættur að vera þreyttur.
Ég skoðaði bloggið mitt og sá þar hverjir hafa verið að skoða ...eða hvaða ip tölur, veit auðvitað ekki meira. Það sem var voða fyndið er að maður sér hvaða leitarorð saklausir einstaklingar hafa verið að nokta til að fletta upp á netinu og þá fyrir slysni lent inn á þessari síðu. Í dag sá ég leitarorðin: "Hvernig á að ná kaffibletti úr teppi", Öryggisnúmer á bankakorti" og "garðhúsgögn"!!!! Enn ömurlegt fyrir þetta fólk að leita af einhverjum nytsamlegum upplýsingum á netinu og detta inn á þetta.
Í morgun var verið að tala um líkamsrækt í vinnunni. Þá rifjaðist upp fyrir mér saga úr ræktinni. Einu sinni sem fyrr var heljarmennið á hlaupabretti. Ég bar mig óvenju íþróttamannlega þennan dag og ákvað að horfa á fótbolta í sjónvarpinu sem var fyrir framan. Það gekk vel framan af og lifði ég mig innilega í leikinn. Svo var þarna eitt ruddabrot þar sem einn gaurinn kom og stökk á hnéin á andstæðingum svo hann datt til hliðar og beyglaðist allur. Þetta var sýnt aftur ...mjöööööög hægt. Þar sem ég var mjög niðursokkinn í þetta fór ég líka að hlaupa hagt, svona eins og endursýningin. Ég fór líka að beygja mig til hliðar eins og aumingja maðurinn frá fílabeinsströndinni sem var að krumpast þarna niður á skjánum fyrir augunum á mér. Vissi ekki fyrr en ég steig svo út af bandinu og á brettið, þrusaðist fram og svo aftur af brettinu. Hélt ótrúlega kúlinu þar sem ég stóð í lappirnar (enda kannski ekki frægur fyrir að hlapa á neinum ógurlegum hraða). Leit auðvitað í kringum mig og sá að ég var nokkuð safe, það sáu mig örugglega fáir ...eða bara allir nærstaddir að horfa niður í gólfið og þóttust ekki sjá mig. Svona til að hlýfa mér. É hélt áfram ...en með aðra stöð samt!
Það er nú ekki mikil hætta á slysum hérna. Keypti mér líkamræktarkort hérna og mér til mikillar "gleði" eru flest tækin biluð. T.d. 3 af 5 hlaupabrettum er biluð, einn crosstrainer sem heyrist óeðlilega mikill hávaði í (getur reyndar verið vegna of mikils álags í þessi tilfelli). Tvö þrekhjól ...annað hjólið þar er að hruni komið (treysti mér ekki á hitt hjólið:) En góðufréttirnar eru þó þær að hlassið er farið af stað og byrjað að æfa sig. Ég er með harðsperrur eftir gærdaginn, enda lyfti ég tvisvar upp einu lóði og einu sinni öðru sem þarna var.
ziggipeter | 17:16
|
...............
sunnudagur, janúar 04, 2009
Eins og venjulega er búið að vera mikil bloggþurrð. Það er líka vegna þess að ég var í fríi. Góðu fríi frá vinnu til að vera með Mörtu minni í orlofi. Í fyrramálið er svo ferðinni heitið austur í Sódómu Austurlands. Þrátt fyrir að vinnan sé skemmtileg og mamma og pabbi eru þarna auðvitað þá bar ahlakkar mig nákvæmlega ekkert til að fara. Ég gæti alveg vanist þessum heimavinnandi húsmæðrastíl svolítið lengur ...þótt spússan hafi auðvitað séð um öll heimilisverkin þar sem hún er í "sumarfríi". Mitt hlutverk fólst aðallega í því að vera í pabbaleik og svo að vorkenna mér hvað það væri efitt að vera heimavinnandi á meðan spússan gerði allt hitt. Mikið er erfitt að vera ég stundum. Önnur áramótaheit eru að draga úr óþarflega háu fituhlutfalli maga, rass og læra.
Ég var búinn að skrifa mjög langan pistil um það hvað ég hata mótmælendur en sá þá að þar með var ég búinn að brjóta fyrra áramótaheitið mitt. Það var nú engin sóma birta yfir þeim pistli svo ég ákvað að stroka hann bara út. Allir sem þekkja mig vita líka hvort sem er hvaða álit ég hef á fólki sem hefur vart komið út fyrir 101 og mótmælir einhverju sem það hefur ekki vit á. Helvítis-Fokking-Fokk!!!
annað skemmtilegt sem kom fyrir mig var að ég fékk þessa dásamlegu tannrótarbólgu milli jóla og nýárs. fékk að borga tæpar 50.000 kr fyrir tæplega tvær klukkustundir í tannlæknastóli og á pensilíni yfir áramótin. Það þýddi ekkert rautt með matnum og ekkert að skála. ....samt er ég ennþá bjartsýnn:-)
En jæja, ég þarf að fara sofa svo ég vakni í fyrramálið. Ég get ekki beðið eftir öllum frábæru skemmtilegu verkefnunum sem bíða mín á Austurlandinu:)
ziggipeter | 22:31
|
...............
miðvikudagur, desember 03, 2008
MARTA AÐ VERÐA FULLORÐIN!
Í dag er litla prinsessan mín eins árs. Það er alveg hreint ótrúlegt hvað þetta er svakalega fljótt að líða. Það er ekki nema eins og bara nokkrar vikur síðan ég lá meðvitundarlaus utan í glugganum á sjúkrahúsinu að reyna hringja í fólk og tilkynna um komu mörtu. Útrúlegt!
Afmælið var nú samt haldið á sunnudaginn síðastliðinn, til þess að föðurfjölskyldan kæmist nú líka. Það var mikið fjör og margar góðar gjafir. Marta er allaveganna ekki að verða kjólalaus á næstunni:)
Fyrir helgina fórum við svo í myndatöku hjá honum Finnboga í Dagsljósi. Við ákváðum að fara í Jólahúsið að þessu sinni ...og það var bara hrein snilld! Ef menn vilja fá virkilega jólalegar myndir af barninu sínu þá er þetta staðurinn. Þetta er reyndar hvort sem er staðurinn en það er annað mál:)
Um helgina er svo matarklúbbur. Ég á að elda. Veit að fólki kvíðir fyrir.
Eitt þykir mér rusalega spaugilegt. Það er hægt að sjá hvaðan fólk er sem skoðar síðuna mína ...reyndar bara í hvaða landi það er þegar það skoðar síðuna mína. Það er líka hægt að sjá hvaða síður þeir voru að skoða síðast áur en þeir skoðuðu mína síðu. Stundum sér maður ef maður hefur verið googlaður. Eitt orð sem oft er googlað er "pallasmíði" Enn ömurlega sorglegt að vera leita sér upplýsinga á netinu um eitthvað gáfulegt um pallasmíði og enda á heimasíðunni minni!
ziggipeter | 21:22
|
...............
fimmtudagur, nóvember 27, 2008
Jólaskapið er ekkert að minnka. Dagurinn í dag var svona extra jóla jóla. Ég sit inni með hor og hita og ves ...er veikur í fyrsta skipti í ferlega langan tíma. Búinn að sitja upp á lofti og vinna og horfa út í snjóstorminn, jónsa er að baka jólakökur og geggjuð jólakökulykt ...jólamúsik á fullu! Þetta er alveg RUSALEGUR stemmari hérna.
Ég lagði sem betur fer af stað norður að austan í gær áður en veðrið varð crazy og slapp við að vera veður teftur í einhverja daga þarna. Mikið sem þarf að undirbúa þar sem litla daman mín ætlar að halda upp á EINS ÁRS AMMALI núna um helgina. Afmælið er þó ekki fyrr en þann 3. des en það hentaði betur að halda þetta upp helgina. Byrjum aðventuna með einni góðri veislu ...það er auðvitað aldrei of mikið af veislum. En það er ótrúlegt hvað þetta líður hratt.
Svo fer að styttast í fæðingarorlof. Ég ætla eiga gott frí í desember og er farið að hlakka óeðlilega mikið að vera bara í pabba leik og leti í marga marga daga:)
ziggipeter | 21:17
|
...............
mánudagur, nóvember 24, 2008
Jólin eru á næsta leiti. Bara réttur mánuður núna til jólanna og undirbúningurinn hafinn. Núna er þó smá munur á því sem áður var því núna þarf að undirbúa afmæli prinsessunnar áður en jólin koma. Ég auðvitað legg mikið á mig ...hérna fyrir austan á meðan spússan fær að dúlla við að þrífa eldhúsinnréttinguna, baka jólakökur og afmælistertur, setja jóladúkana og strauja jólagardínurnar. Ég auðvitað hringi reglulega og segist vera voða sorry að geta ekki hjálpað.
Ég kláraði þó loksins að skreyta húsið mitt. Það gett nú ekki alveg þrautarlaust fyrir sig, því þegar setja átti herlegheitinn upp þá kom í ljós að það bara kom ekkert ljós! Þegar maður á seríur upp á tugi þúsunda þá var þetta mikið kreppuáfall. Ég náði þó að laga þetta ...nema hvað og skreyta húsið að utan. Á föstudaginn var nágranni minn úti að skreyta hjá sér. Ég auðvitað brosti og sagði honum hvað þetta gleddi mig að sjá fleiri skreyta. Svipurinn sem ég fékk var ekki jafn gleðilegur. "Geturðu reynt að draga eitthvað úrlítið úr þessari framkvæmdargleði hjá þér vinur? Þú ert farinn að setja frekar óþægilega pressu hérna á mann!" Daman hans tísti og var alls ekki jafn reiðileg á svipinn og hann:)
Svo tók ég loksins mislukkaða sigga-móment. Ég fór í labbitúr með Mörtu í miðbæinn á laugardaginn. Trítlaði ég göngugötuna með iPod á fullu og hlustaði á jólalög og gekk með sólheimaglottið mitt. Hitti þar félaga Árna Pál þegar ég var kominn í gegnum miðbæinn. Hann spurði hverju ég væri að mótmæla. ég kannaðist auðvitað ekki við neitt og leit afturfyrir mig. hummss..... Siggi gekk fjórum metrum fyrir framan heila mótmælagöngu og fattaði ekki neitt!
ziggipeter | 19:31
|
...............
laugardagur, nóvember 15, 2008
Alveg andlaus í augnablikinu. Núna er ég búinn að mála eitt stk eldhús, líka eldhús gluggana, sniða gólflista og olíubera eldhúsbekkinn ....allt til þess að komast út að skreyta:) mér var nebblega sett fyrir að klára þetta áður en ég skreytti. Jújú, kannski eitthvað smá mikilvægara að koma þessum hlutum í lag áður en skrautið fer upp, en núna verð ég óstöðvandi;)Ég tek á móti kvatningarópum og stuðning í kvöld utan við Engimýti 2. Veitingar í boði fyrir þá sem kíkja á mig ;)
ziggipeter | 17:05
|
...............
laugardagur, nóvember 01, 2008
Loksins Loksins! blogga blogga smá. Ég var búinn að blogga þessa rusalegu færslu ekki alls fyrir löngu og var að fara setja hana inn þegar ég ýtti á einhvern takka inni í setting og færslan mín datt út og boggið lokaðist. Það lokaðist ekki bara fyrir ykkur öllum ...heldur líka mér! Guð gaf mér ekki greind til þess að vera laginn við tölvur. Í dag er samt kominn nóvember. Það eru nákvæmlega 15 dagar í það að ég fer að skreyta húsið mitt með jólaseriúnum og þar af leiðandi ekki langt í það að jólin sjálf komi. Ég er auðvitað aðeins farinn að horfa á jólamyndir þegar ég er einn fyrir austan og aðeins farinn að skoða jóladót á netinu. Krepputal hefur reyndar forðað mér frá því að vera panta mikið.
Ég fékk eina snilldar hugmynd í morgun. Tengdó hringi hingað. Sagði spússu minni allt um það merkilega sem hafði gerst hjá henni um morguninn. Það var s.s. þvotta sögur, þvoði x margar vélar, braut svona mikið saman, setti sumt út á snúru og þurfti að strauja sumt. Why! jú, sko tengda faðir minn tilvonandi, sem er auðvitað sá sem á samkvæmt öllum réttarreglum og eðlilegu að sitja undir svona, er upptekinn á laugardögum. Það er enski í dag og auðvitað er ekki hægt fyrir aumingja tengdó að tala um húsverkin fyrir svo daufum eyrum. Þess vegan datt mér í hug að næst þegar við fáum svona símtal, þá hringi ég í gemsanum í tengdó, segi honum að það sé samtal sem hann þurfi að taka þátt í og setji svo símtólinn samann! Þá geta þau rætt þetta bara í "gegnum okkur" í síma:) Snilld!!!! Ég hefði átt að fara í svona hjónaráðgjöf en ekki umhverfisráðgjöf:)
Annars er lítið að frétta, það styttist þó vonandi í að ég fari að taka langþráð fæðingarorlof sem planið var að taka út í jólamánuðinum. Fórum í þessa líka frábæru skírn í Draflastaði á fimmtidagskvöldið. Dáldið fyndið að hafa skírn svona seint. Mér fannst það skrítið fyrst en það var alger snilld. Elska köku veislur. ...fékk líka makíntoss sem æsti upp jólastemmarann;)
Ég er annars búinn að opna síðuna mína aftur eftir smá bras enda tók móðir mín því frekar illa að búið væri að loka og öllum óviðkomandi bannaður aðgangur.
bless í bili....
ziggipeter | 14:01
|
...............
þriðjudagur, september 09, 2008
Mikið fjandi er langt síðan ég hef bloggað! Það kemur reyndar til af góðu. Það er búið að vera brjálað að gera í nýju vinnunni og það er ekkert sem bendir til þess að það fari að minnka ...sem er auðvitað alveg barasta frábært því annars yrði ég rekinn. Hér verður enginn ekki rekinn fyrir að gera ekki neitt ....ef þú skilur :)
Ég er ennþá að berjast við að reyna að skilja það endanlega hvað starfið felur í sér að ég eigi að gera. Allt er nýtt og ég er að sjá allt í fyrsta skipti hér í Sódómu. Ráðgjafahlutverkið er gríðarlega margbreytilegt og ég er að verða sérfræðingur í lagalegu hliðinni er varða úrgangsmál á Íslandi ...já, þeg veit að þetta hljómar sérlega áhugavert:) Það er þó kostur að hér þekki ég ansi marga og því hafa ansi margir tekið fávisku minni vel og verið tilbúnir að hjálpa og ég tel mig hafa fengið ansi fínan yfirmann:) Ég þarf samt að keyra á milli Akureyrar og Reyðarfjarðar einusinni í viku og dvelja hérna í nokkra daga í einu og það er alveg strax byrjað að vera pínu ponsu þreytandi og þá sér í lagi að þurfa að skilja litlu kellingarnar mínar eftir heima þegar ég fer. Það er eiginlega aðeins meira en erfitt! Samt er alltaf alveg frábært að koma ...heim, þótt akureyri sé auðvitað nú orðið meira heima en hér. Eina ferð hef ég þó tekið þær með og vorum við þá hérna í viku í fínu stóru nýju íbúðinni minni á Reyðarfirði. Það er annars mjög skrítið að eiga heima á tveimur stöðum. Ég á tvo tannbursta og eiginlega tvennt af öllu núna. Skrítið að fara versla og hugsa; já, mig vantar eitt svita-rollon fyrir akureyri, vantar eyrnapinna fyrir reyðarfjarðarheimilið, það vantar uppþvottarvélarþvottaefni (vó, langt orð!) á Akureyrarheimilið, og það vantar líka kerti á bæði heimilin!!!! Fáránlegt!!!!
Ég hef ótrúlega lítið gert af neyðarlegum hlutum. Ég er samt pínu hræddur að það sé vegna þess að eigi eftir að safna þessu upp og geri einhvern stóran skandal í staðinn fyrir marga litla. Vona bara að það gerist ekki. Annars var ég að spá í því að núna er september sem er alveg að vera búinn og þá kemur oktober. Þegar oktober er búinn þá kemur nóvember. Þá fer ég að JÓLASKREYTA!!!! Þetta er bara rétt handan við hornið. Ég þarf að fara gera ráðstafanir með að panta jólahúsin mín þar sem ég ætla ekki að treysta á ógeðiðpakkið sem pantar sérvöruna í Húsasmiðjunni og ákvað í fyrra að panta bara aðra gerð af jólahúsum! fáráðlingar!
Marta mín dafnar vel og er eins fullkominn og hægt er að vera ...að því undanskildu að hún er ekki mikið hrifin af því að fara borða. Það segja nú samt allir að það bara komi. Svo ég vona þá bara að það komi! Hún fékk að prófa hávaða leikfang um daginn en auðvitað er hún svo frábær pabbastelpa að hún ákvað að spila ekki hátt ...bara svona rétt að snerta sílófóninn svo pabbi fengi ekki hausverk:) Sjúklega frábærlega skörp stelpa!!!! Ég man annars ekkert eftir því sem ég ætlaði að skrifa eins og venjulega. Ég var búinn að hugsa ferlega langan pistil en það hefur ekkert komið sem ég ætlaði að skrifa ...því ég er búinn að gleyma hvað það var!
Gleðifréttir vikunnar eru svo þær að Ásgeir er búinn að fjölga stelpunum og eins var ég að frétta af öðru frábæru vinafólki sem er líka að fjölga sem eru FRÁBÆRAR fréttir ...en þori samt ekki að segja hver strax:) Ég ráðgeri svo að fara í veislu með því fólki um helgina og samgleðjast:) frábærar svona barnafréttir alltaf. En jæja, best að fara þykjast vinna í smá stund fram yfir miðnæti:)
ziggipeter | 20:04
|
...............
fimmtudagur, ágúst 14, 2008
Ég fékk mjög svo langþrað knús í dag frá Mörtu minni auk þess að fá kossa og knúsa frá spússu minni sem er mér auðvitað algerlega ómissandi. Ég er búinn að vera mikið á ferðalagi undanfarna daga, fara á Reyðarfjörð, þaðan á Húsavík í allan dag og loksins heim undir kvöld. Ég bauð vinnuveitandanum heim í mat og tókum þar kvöldmat sem klikkar ekki ...grillaðar lambalærisneiðar og rauðvín. Bara gott.
Annað sem er ekki gott! Á morgun þarf ég svo að sýna fram á það afhverju ég á að fá borguð laun þar sem ég þarf að sitja lögfræðilegan fund um umhverfismál ...þar sem ég á actually að hafa eitthvað gáfulegt fram að færa. Til að gera langa sögu stutta þá opnaði ég aðra rauðvínsflösku og er um það bil að drepast úr stressi. Held ég hljóti að gera gott múv ...mæti bara timbraður og ósofinn á morgun!!! Mikill léttir þó að hafa skrifað undir ráðningarsamninginn núna fyrir stundu:)
Marta mín og spússa fóru í myndatöku í fyrradg til hans Finnboga í Dagsljósi í Listigarðinn. Það voru alveg snilldar myndir, set smá sýnishorn hérna:)
Já, svo þarf ég nauðsynlega að heyra í Huldu! ...helv HLH!
ziggipeter | 21:16
|
...............
sunnudagur, ágúst 10, 2008
Ég er hættur á mínum gamla vinnustað. Það er bæði gaman og leiðinlegt. Ég var auðvitað kvaddur að gömlum sið á þessum vinnustað ...þegar ég kom inn í síðasta skiptið stóð allur mannskapurinn bak við hurð með fulla fötu af vatni og myndavél. Ég fór holdvotur heim ...reyndar ekki síðasta daginn heldur næstsíðasta daginn þar sem þeir feiluðu sig eitthvað á því hvenær ég hætti. Þeir hafa líklega bara viljað vera öruggir með þetta:) Einnig var skápurinn minn tekinn í gegn og klæddur í álpappír. Nokkuð vel sloppið því ég hefði alveg mátt eiga von á því að allt í skápnum væri klætt í álpappír líka:)
Nýja vinnan er ágæt. Ég er að reyna átta mig á henni, svona aðallega að lesa öll lög sem viðkoma umhverfi og hreinni náttúru. Ég er líka að læra temja mér nýjan lífstíl með að flokka allt rusl. Ferlegt! við erum að tala um að þvo skyrdollur og setja lokið (málminn:) í sér-rusla tunnu og skeiðina í sérruslatunnu ...ég sem ekki einusinni haft þolinmæði í að fara með rusl á haugana því þar eru tveir eða þrír flokkar af rusli! Nýr lífstíll felst líka í að hætta borða rusl! ...gangi mér vel!
ziggipeter | 12:26
|
...............
sunnudagur, júlí 27, 2008
Í dag var frumsýning í jólahúsið! Það var auðvitað alveg rusalega skemmtilegt og fyrir lifandis löngu kominn tími á það að Marta fengi loksins að líta inn í þetta helgihof. Jólasveinninn, sem er reyndar sumarlegur, sagði okkur að þetta væru upplifun á áströlskum jólum því þar er þetta klassískt hitastig á jólunum ...svona rétt um 23 gráður og ekki einusinni sól. Það var reyndar alveg ótrúlegur mannfjöldi þarna og varla pláss fyrir okkur að labba þarna um svo við tókum bara svona snökt preview ...skoðum bara betur í næsta mánuði;) þar á eftir fórum við á sveitamarkað og héldum svo áfram hefðbundnum sunnudags eyjafjararuntinum enda vel mett eftir brynjuís og creepes.
ziggipeter | 18:36
|
...............
Slappað af fyrir framan sjónvarpið!
Það er bara rétt vika eftir í löggunni. Það eru vægast sagt blendnar tilfinningar. suma hluti getur maður ekki beðið eftir að losna við en ég reikna nú samt með því að flest eigi ég eftir að sakna. Það er bara blessaða verlunarmannahelgin eftir sem einmitt þetta árið á að vera hin eina sanna fjölskylduhátíð. Ég er bara að reyna að muna hvað allar hinar áttu að vera :) Ég er svolítið hræddur um að ef veður verður gott hérna þá verði þetta ansi líflegt hérna ...en þá bara fær maður að hætta með hvelli:)
Annars finnst mér svolítið eins og ég sé kominn aftur á skólabekk. Ligg hérna í þeim fáu frístundum sem ég hef til þess að lesa lög um spilliefni og umhverfisvernd, starfsleyfi fyrirtækja sem meðhöndla spilliefna og evrópustaðla og alcoastaðla. Þetta er samt merkilegt nokk skemmtilegra en það kann að hljóma. Ég er bara ferlega spenntur fyrir nýju vinnunni minni. Ég er búinn að fara eina ferð austur og skoða mig um, þekkti þarna flesta sem var verið að kynna mig fyrir, þekkti líka marga aðra. Ég fæ líka þessa dandala fínu íbúð til afnota sem reyndar er staðsett á Reyðarfirði.
Stefnan er svo sett á sólbað í dag ...eða eitthvað annað álíka gáfulegt. Hitinn hérna er bara fáeinum gráðum minna en í London til dæmis. Það er alltaf voðalega góður mælihvarði á það hvað það er heitt að núna eru útlendingarnir í bænum meira að segja í stuttbuxum. Oftast skera þeir sig svo vel frá íslendingum því þeir eriu yfirleitt kappklæddir á meðan við erum öll í stuttbuxum þegar spáin er góð.
ziggipeter | 08:47
|
...............
föstudagur, júlí 18, 2008
Við feðginin sitjum hérna snemma morguns og hlustum á Mozart for Kids á fullum styrk. Klassíkin er alveg að virka á mína konu. Mamma er voða þreytt þar sem Marta var ekki mikið fyrir að hafa augun lokuð í nótt og voðalega pirruð enda kominn með 6 tennur og tvær til viðbótar á leiðinni:)
Í gærkvöldi fórum við hjónaleysin í bíó með Begga og Hrafnhildi. Þetta var svona hálfgerð nostralgíuferð eftir ófáar Londonferðir og fórum að sjá Mamma Mía. Ég var með gæsahúð frá upphafi til enda! þvílík snilldar mynd þótt hún sé auðvitað ferlega hallærisleg á köflum og næstum hægt að líkja það við náttúruhörmugar að láta James Bond syngja í dans- og söngvamynd! ...menn verða að sjá það til að skilja hvað ég meina:)
Í gær gerði ég svo við sláttuvélina mína. Ég er búinn að lísa því yfir lengi að það eina sem ég kunni er að skipta um kerti á svona olíubraki. Búinn að fara tvisvar til Bjarna og betla sláttuvél, einu sinni búinn að fara til Berglindar og Hlyns í húsinu fyrir aftan og fá trimmara og slá grasið og það var bara omg! þurfti að fara þrjár umferðir en samt var það ekki nógu gott. Ákvað svo í gær að rífa allt draslið í sundur og ath hvort ég fyndi nú eitthvað að henni. Nágrani minn við hliðina fór þá að spjalla. Ertu nú búinn að ath kertið siggi minn! neinei, þetta er alveg ný vél segji ég. nú ok, segir hann. Horfir samt á vélina og er greynilega ekki alveg að trúa mér. hvað er þessi nýja vél gömul? Hún er bara sex ára segi ég. Rafvirkjanágranni minn horfði á mig í stuttu stund og sagði svo, heyrðu vinur minn, maður skiptir um kertið einusinni á ári! já ok, það eina sem ég kunni var að skipta um kerti ...mér bara datt ekki í hug að prufa það. Verslaði mér kerti og vitið menn! vélin bara hrökk í gang og ég sló og sló:)
Jæja, þetta er orðið gott í bili. Við erum búinn að skipta um gír og farin að hlusta á Mamma Mía soundtrackið sem var að berast mér;) Dönsum hér og syngum í kór.
ziggipeter | 08:07
|
...............
laugardagur, júlí 12, 2008
Það er mikið búið að gerast síðan síðast var skrifað. Við fjölskyldan erum búin að ferðast til Tenerife og dvelja þar í tvær vikur. Tenerife er hinn fulkomni staður til þess að fara með fjölskylduna til þess að slappa af og gera ekkert annað. Drekka bjór og verða sólbrúnn (eða eldrauður:) Þarna vorum við í tvær vikur heilar og var það bara fínt. Ég auðvitað náði að stíla inn á dýrasta Evru tíma frá upphafi, fór í 130 kr á meðan ég var úti, en lækkaði auðvitað um leið og ég kom heim ...nema hvað!!! Ferðinn gekk í alla staði mjög vel, Marta Þyrí var mun betri í hitanum en ég, grétt nánast ekkert og tók tvær tennurí viðbót og tvær tennur í viðbót lagðar af stað. Þær eru þá að verða átta talsins og er ég víst núna alveg hættur að pota puttunum mínum upp í hana þar sem þeir eru farnir að koma vel tuggnir út aftur.
Þegar heim var komið biðu mín garðverkin. Garðurinn var svona eins og frumskógur og sláttuvélinn mín er biluð. Eftir að vera búinn að spjalla við nágrana mína í bakgarðinum var mér boðin þeirra "sláttuvél". Ég þaði enda garðuinn minn orðin eins og kafloðið tún í sveit. Sláttuvélinn gengur hinsvegar fyrir lífrænum orkugjafa ...eða mér. Þetta er svona trimmari. Ég auðvitað var ofur kokhraustur með mig þóttist vel ráða við þetta. Hóst svo slátturinn. Þegar ég var búinn að hlaupa garðinn fimm sinnum á enda með trimmarann á undan mér var ég að verða bísna þreyttur. Ekki nóg með að trimmarinn væri örlítið þungur í kófinu þá var enginn safnkassi á þessu eins og vélinni minni heitinni. Heldur frussaðist grasið bara beint upp og aftur fyrir vélina ...þar sem ég stóð. Eftir að nánast drepa mig á þessari vitleysu og hafa rakað graðinn mátti ég fara aðra umferð. Viðgerð á sláttuvélinni minni hefur nú verið sett í forgang.
Við komuna til landsins hitti ég svo ömmu mína og afa á Egislgötunni sem er alltaf jafn gott. Þau búa annars í Orlando svo maður sér þau alls ekki nógu oft. Held ég fari að ráðgera ferð þangað í vetur:)
Að lokum er það svo aðal málið, en ég réði mig loksins í vinnu sem lögfræðingur. Ég varð aðallega að vinna við Alver á Reyðarfirði en sem betur fer þarf ég ekki að flytja neitt svo ég bý áfram hérna í engimýrinni:)
ziggipeter | 08:34
|
...............
fimmtudagur, júní 19, 2008
ziggipeter | 11:06
|
...............
mánudagur, júní 16, 2008
Til hamingju ég! Ég útskrifaðist á laugardaginn og átti ammali í gær. Takk fyrir allar kveðjurnar þið sem munduð eftir mér:) Ég er í spennufalli þessa dagana og vill því aðeins gera sem minnst. Sem betur fer var ég ekki að vinna þessa ógeðslegustu helgi ársins, þar sem bærinn okkar er fylltur af olíuheilum og dópistum. Sorglegt þegar fólk virðist getað skipulagt allan skapðann hlut og aldrei þurft að svara til ábyrgðar eins og þessa helgi. Þetta virðast vera lið sem fer að sofa klukkan 11 á kvöldin (það er svo þreytt eftir alla skipulagninguna) og vakni bara klukkan 10 þegar ofur-staff bæjarins hefur sótthreinsað miðbæinn og heldur því að ekkert gangi á um næturnar þar sem allt er orðið tandur hreint og bærinn iðar af fjölskyldufólki ...en kannski er ég bara eitthvað viðkvæmur fyrir þessu:) Ég held samt að fáir geri sér grein fyrir því hvað Akureyringar eru heppnir með ótrúlegt starfsfólk Akureyrarbæjar.
ziggipeter | 22:32
|
...............